8. flokkur karla og kvenna F.H.
Myndir - Vinamót 17.03.07
Klukkan
Klukkan
Dagsetning
8. febrúar 2012
31.08.2009 17:26:02 / Helga

Æfingar

Þá fer veturinn að skella á æfingarnar í handboltanum að fara að byrja á fullu æfingarnar hjá 8. flokki í vetur verða eftirfarandi: />

Mánudaga, kl. 17:00 – 18:00 í Víðistaðarskóla og />

Fimmtudaga kl. 17:00 – 18:00 í Kaplakrika />

>

Fyrir þá sem voru að fara upp um flokk þá verða æfingarnar hjá 7. flokki karla eftirfarandi: />

Mánudaga , kl. 16:00 -17:00 í Víðistaðarskóla, />

Þriðjudaga kl. 16:00 – 17:00 í Kaplakrika og />

Fimmtudaga kl. 16:00 – 17:00 í Kaplakrika />

>

Og hjá 7. flokki kvenna: />

Miðvikudaga, kl. 17:00 – 18:00 – Staðsetning kemur síðar />

Fimmtudaga, kl. 17:00 – 18:00 í Kaplakrika og />

Sunnudaga, kl. 12:00 – 13:00 í Kaplakrika />

>

Verum dugleg að mæta á æfingar í vetur !!! />

Áfram F.H. />


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.08.2009 09:04:28 / Helga

Handboltaskóli F.H.

Handboltaskóli F.H. verður starfræktur í sumar að venju og verður hann frá 5. ágúst til 14. ágúst.

Námskeiðið er fyrir börn á aldrinum 8 – 13 ára, fædd 1996 – 2000.

Námskeiðið er frá kl. 10 – 12 en boðið er upp á gæslu frá 9 á morgnana.

Markmið skólans er að er að bjóða þátttakendum upp á fjölbreytta og öfluga Handknattleiks- og leikjadagskrá þar sem bæði stelpur og strákar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Í lok hvers námskeiðs verður pizzuveisla og allir fá viðurkenningarskjal. Kostnaður á námskeiðið er 4000-kr og er veittur 50% systkinaafsláttur. 

Nánari uppl. veitir  Sigurður Þorleifsson, Formaður unglingaráðs handkn.d  FH

S: 868-1676


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 13:20:21 / Helga

Æfingaleikur, seinasta æfingin og lokahóf

Æfingaleikur við Víking á eftir klukkan 17:00 í Kaplakrika !!!

Hvet alla foreldra til að koma og horfa !!!

 Seinasta æfingin verður síðan næsta þriðjudag eða þriðjudaginn 5. maí þar sem allir sem mæta fá viðurkenningarskjal.

 Lokahóf yngri flokka verður síðan laugardaginn 9. maí kl. 12:00 í Kaplakrika, þar sem allir fá verðlaunapeninga. Eftir verðlaunaafhendinguna verða pizzur og gos verða í boði fyrir krakkana og kaffi og kökur fyrir foreldra.

 Takk fyrir veturinn !!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 18:34:50 / Helga

Sumardagurinn fyrsti

Æfingin n.k. fimmtudag 23. apríl fellur niður vegna þess að húsið er lokað vegna sumardagsins fyrsta !!!

Gleðilegt sumar !!!



» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 08:33:27 / Helga

Æfingaleikur, 28. apríl

  Þriðjudaginn 28. apríl keppum við æfingaleik við Víking á okkar æfingatíma í Kaplakrika frá 17:00 – 18:00.

Ég vil hvetja alla foreldra til að koma og horfa !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 09:13:46 / Helga

Fyrsta æfing eftir páskafrí

Fyrsta æfingin eftir páskafrí verður á morgun, fimmtudaginn 16. apríl, kl. 17:00 í Kapla.

Það er stutt eftir af vetrinum, verum því öll dugleg að mæta á þessar seinustu æfingar tímabilsins.

Framundan í endan apríl og byrjun maí: æfingaleikur og lokahóf.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2009 08:21:40 / Helga

Páskafrí

  Nú fer að líða að páskum og falla þá þrjár æfingar niður hjá okkur. Æfingarnar 7, 9 og 14. apríl falla niður. Fyrsta æfingin eftir páska verður fimmtudaginn 16. apríl.

Ég vona að allir haldi áfram að vera duglegir að mæta á æfingar eftir páska !!!

 Eftir páskafrí ætlum við að taka æfingaleik við eitthvert annað lið.

 Í byrjun maí verður síðan stór glæsilegt lokahóf yngri flokka !!!




» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2009 08:33:58 / Helga

Ekkert mót um helgina

  Því miður hefur Víkingur hætt við að hafa mótið um næstu helgi !!!

Í staðinn munum við reyna að taka æfingaleiki við 7.fl. karla og kvenna seinna í vetur og síðan kannski að reyna að fá æfingaleik við eitthvert annað lið með vorinu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2009 10:31:29 / Helga

Myndir

Hægt er að skoða myndir af mótinu í Garðabæ á þessari slóð:
http://www.tryggingamidstodin.is/tm/samfelagsmal/stjarnan 

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2009 08:37:57 / Helga

Annað mót

  Það hefur verið ákveðið að halda annað mót í 8.fl.

Verður það haldið helgina 27. – 29. mars nk. í Víkingsheimilinu. Þeir sem ekki geta verið með eru beðnir um að setja comment hér að neðan til þess að ég geti vitað hvað ég get farið með mörg lið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2009 08:26:36 / Helga

Fimmtudagurinn 12. mars

Á morgun ætla ég að leyfa krökkunum að byrja í frjálsu, því að þau eru búin að vera svo frábær og standa sig vel síðustu daga. Síðan munum við spila út æfinguna. Við þurfum að hætta aðeins fyrr eins og venjulega þegar er leikur hjá meistaraflokk karla um kvöldið en þetta er seinasti heimaleikurinn í deildinni í vetur.


Í þakklætisskyni
við ykkur foreldrana fyrir að mæta með krökkunum á heimaleiki í vetur og aðra stuðningsmenn hefur F.H. ákveðið að hafa frítt inn á leikinn og hvet ég því alla til þess að mæta og horfa á leikinn, strákarnir þurfa á öllum þeim stuðning sem mögulegur er, ef að þeir ætla að eiga séns á því að komast í úrslitakeppnina.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 08:27:52 / Helga

Engin æfing í dag

Mikið ofboðslega var skemmtilegt í gær, frábært að sjá krakkana hlaupa inn með strákunum, þau voru rosalega flott !!!


 
Síðan vildi ég minna á að æfingin í dag fellur niður !!!

Sjáumst á fimmtudaginn !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 16:56:34 / Helga

Takk fyrir frábæran laugardag

Ég vil byrja á að þakka öllum iðkendum og foreldrum fyrir frábæran og vel heppnaðan laugardag. Stóðu allir sig ótrúlega vel og er ljóst að handboltinn í F.H. á sér bjarta framtíð með þessa krakka í fararbroddi.

Til hamingju krakkar með árangurinn !!!

Á mánudaginn (9. mars) mætum við síðan á Ásvelli kl. 18:00 (vera tilbúin þá) og keppum vinaleik á móti Haukum. Síðan fáum við okkur saman pylsu og kók og þurfa allir að koma með 200 kr. með sér. Síðan hefst leikur meistaraflokks karla Haukar – F.H. kl. 19:30 þar sem krakkarnir munu síðan leiða inn á völlinn leikmenn meistaraflokks karla F.H. verða því allir að mæta.

Æfingin okkar fellur síðan niður þriðjudaginn 10. mars.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 11:20:55 / Helga

Leikirnir

Tími                    Leikur                   Völlur

Blár

8:15     -           F.H. – Afturelding        1
8:45     -           Fram – F.H.     -           1
9:15     -           F.H. – Grótta   -           1
9:45     -           Stjarnan – F.H.            1

Rauður
14:00   -           F.H. – Í.R.       -            2
15:00   -           Fram – F.H.     -           2
15:15   -           F.H. – Grótta   -           2

Grænn
15:15
   -           H.K. – F.H.                   1
16:00   -           F.H. – Valur                 1
16:30   -           Haukar – F.H.              1
17:00   -           F.H. – Fram                 1

Appelsínugulur
14:30   -           Fylkir – F.H.    -            4
15:15
   -           Valur – F.H.     -           4
15:30   -           F.H. - Afturelding         4

Ég hugsa að það verði engar frekari breytingar á leikjunum !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 11:15:09 / Helga

Mót

  Þá er komið að því, mótið er um næstu helgi. Það keppa allir 3 eða 4 leiki og  fara þeir allir fram laugardaginn 7. mars.

 Þið verðið að muna að fara snemma að sofa og borða hollan mat á föstudagskvöldið krakkar, til þess að vera í fullu fjöri á laugardaginn.

Leikirnir fara allir fram í Mýrinni Garðabæ, sem er við hliðina á Fjölbrautarskólanum í Garðabæ.

Það þurfa allir að taka með sér nesti til þess að fá sér á milli leikja, hollt og gott nesti. Sælgæti, gosdrykkir og orkudrykkir eru stanglega bannaðir. Það er líka mjög sniðugt að taka með sér brúsa.

Við hvetjum alla foreldra til þess að mæta og horfa á krakkana og endilega takið sem flesta með: ömmur, afa, systkini o.fl.

Við munum reikna með því að flestir foreldrar komi og horfi á og því viljum við biðja ykkur að hjálpa okkur að halda utan um hópinn og passa að krakkarnir séu alltaf komnir inn í klefann sem við verðum í 10. mín. fyrir hvern leik.

Gott er að vera mætt stundvíslega 20. – 30. mín. fyrir fyrsta leikinn.

Við erum í engum vafa um að krakkarnir eigi eftir að standa sig eins og hetjur og verði félaginu til sóma.

Vinsamlegast tilkynnið forföll í síma 692 -1721 !!!

Hlökkum til að sjá ykkur með bros á vör á laugardaginn

Helga (692-1721), Ásgeir og Silja


Áfram F.H.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8